
Kannski er það bara ég en Jóhanna Guðrún og Lindsey eru helvíti líkar! Vonum bara að það fari ekki eins fyrir okkar stjörnu eins og þeirra.
Tvífarar dagsins?
31 2008 · 14 hafa sagt sína skoðun
→ 14 hafa sagt sína skoðunTags: Hversdagsrúnk
Húrra fyrir Kráareigendum
31 2008 · 6 hafa sagt sína skoðun
Ég er alveg hrikalega ánægður með félag kráareigenda í dag. Þeir ákváðu að bjóða stóra bróður birginn og brutu reykingabannið í gær. Þeir ákváðu að leyfa gestum að reykja inni á barnum þrátt fyrir boð og bönn! En afhverju gerðu þeir það…jú, löggjafarvald okkar íslendinga telur sig ekki vera við sama bát og þegnar þessa lands. Á hinu háa Alþingi er staðsett reykingaherbergi og á Leifsstöð er reykingagerbergi! En kráareigendum er hins vegar ekki leyft að hafa afdrep fyrir sig og sína sem blysin vilja sjúga. Þetta er einhver almesti hroki sem ég hef orðið vitni af þessi dægrin.
Finnst alveg frábært að þeir láti ekki bjóða sér svona kúgun af verstu verð
Þrefallt húrra fyrir kráareigendum
ást og virðing
Ómar Örn
→ 6 hafa sagt sína skoðunTags: Fréttir · Hversdagsrúnk
Hreysti (Ívar) og Kraftur (Arnar Grant)
30 2008 · 11 hafa sagt sína skoðun
Ég veit ekki hvað mér á að finnast um þessa auglýsingu þeirra Ívars Guðmundssonar og Arnars Grants. Annað hvort er þetta einhver allélegasta starskíoghutchsventísklámmyndarauglýsing sem gerð hefur verið eða þeir hafa bara svona góðan húmor félagarnir. Þegar þeir eru að hoppa í sjónum og “kassa” hvorn annan þá fór mikill hryllingur um mig!
Í lokin þá kemur…”þú þekkir hreysti, þetta er bróðurinn, Kraftur með bananabragði”
hérna er auglýsinguna að finna
úffff…ég get ekki meiri svona vitleysu
ást og virðing
Ómar Örn
→ 11 hafa sagt sína skoðunTags: Hversdagsrúnk
Engir Alþingispervertar
30 2008 · Enginn sagt sína skoðun
Þessi frétt kemur mér einhvern veginn ekkert á óvart, enda gæti ég ekki séð Árna Johnsen og Guðjón Arnar vera að besefast eitthvað í matráðskonunum á Alþingi!
ást og virðing
Ómar Örn
→ Enginn sagt sína skoðunTags: Hversdagsrúnk
Spaugstofan rís upp frá dauðum.
29 2008 · 2 hafa sagt sína skoðun
Loksins þegar Spaugstofan rís upp og verður fyndin þá missa allir landsmenn andlitið og byrja að hneykslast! Mikið hefur verið skrifað á bloggsíðum( t.d hér og hér og á netmiðlana um það hversu ílla spaugstofumenn tóku á heilsufari nýs borgarstjóra. Ég get í rauninni ekki sleppt því að leggja orð í belg. Að mínu mati hefur spaugstofan gert tvo eðal þætti. Sá fyrri var fyrir nokkrum árum þegar þeir gerðu stólpagrín af kristinni trú! einn sketchinn var þegar blindur maður og sjáandi maður kveiktu á sjónvarpinu og þá var sagt “blindir fá Sýn”! Þá var einmitt íþróttarásin sýn nýtilkomin! Fannst það ansi fyndið. Og svo þátturinn núna á laugardaginn þar sem þeir gerðu grín að sirkusnum í borgarpólitíkinni! Mér hefði fundist það skrítið ef þeir hefðu sleppt því að gera grín að þessum súrealísku atburðum sem gerst hafa í borginni! Landinn hefur verið að missa sig í greiningu á Ólafi F! Ég spyr einfaldlega hvernig varð umræðan til um veikindi Ólafs F? Ekki tóku spaugstofumenn það upp á sitt einsdæmi að tala um þetta! Þeir einfaldlega gerðu grín að því hversu umræðan var mikil um veikindin hans og gerðu stólpagrín af því! Spaugstofumenn voru í raun að gera grín að fólkinu sem komu umræðunni upp frekar en Ólafi F. Mér finnst að fólk ætti að geta haft smá húmor fyrir þessum sirkus sem búinn er að vera og hætta þessu væli ellegar hringja á vælubílinn og sleppa því að horfa á Spaugstofuna.
Góður þáttur
ást og virðing
Ómar Örn
→ 2 hafa sagt sína skoðunTags: Hversdagsrúnk · Pirringur
Eyjan.is tilnefnd til vefverðlauna 2007
26 2008 · 4 hafa sagt sína skoðun
Góðar fréttir fyrir okkur eyju fólk, þar sem við keppum til úrslita um vefverðlaunin 2007 í flokknum besti afþreyingarvefurinn. Þetta er merkur árangur þar sem Eyjan er aðeins rúmlega hálfs árs gömul! Þetta gerir ekkert annað en að hvetja okkur til dáða til þess að gera ennþá betur. Móttökur vefsins hafa verið frábærar og vonum við að áframhald verði á því.
vefir sem tilnefndir eru í flokkinum Besti afþreyingarvefurinn
• Eyjan.is
• Eve Online
• Kvikmyndir.is
• Baggalútur
• Vísir
Tilnefningar til annarra flokka er hér
ást og virðing
Ómar Örn
→ 4 hafa sagt sína skoðunTags: Fréttir
Luxor hættir!!!
25 2008 · 7 hafa sagt sína skoðun
Var að sjá að sönghópurinn Luxor hafi lagt raddirnar á hilluna eftir að hafa gert atlögu að heimsfrægð! Ég er búinn að mæta á alla tónleikana þeirra jafnt á íslandi sem og erlendis, ég er kominn með tattú á nárann sem stendur Lúxor í blíðu og stríðu. Ég á eftir að sakna þeirra meira en feitur maður saknar hamsatólgsins.
R.I.P Lúxor
ást og virðing
Ómar Örn
→ 7 hafa sagt sína skoðunTags: Hversdagsrúnk
Mistök hjá Ungum vitleysingum
24 2008 · 21 hafa sagt sína skoðun
Er að horfa á byrjunina á borgarstjórnarfundinum í beinni á RÚV, og ungir jafnaðarmenn, ungir vinstri grænir, ungir framsóknarmenn og þessi eini ungi stuðningsmaður Margrétar Sverrisdóttur eru að láta eins og fífl og öskrandi á fundinum, þannig að enginn friður næst til þess að halda áfram. Að mínu mati ætti að rýma fundarsalinn og henda þessum vitleysingum út. Þau eru bara að skaða sinn málstað og ekkert annað. Þau geta ekki komið í veg fyrir borgarstjórnarskipti og hvað þá með þessum fíflagangi! Eins og ég sagði þetta er ekki þeirra málstað til framdráttar. Mótmælið eins og þið viljið, en gerið það löglega þannig að hlustað verður meira á ykkur! Ég er sammála því að þetta er komið út í vitleysu, en þið getið huggað ykkur við það að þessi borgarstjórn verður fallin áður en árið er liðið.
ást og virðing
Ómar Örn
→ 21 hafa sagt sína skoðunTags: Pólitík · Pirringur
Operation Deserter Storm part 2
24 2008 · Enginn sagt sína skoðun
Jæja þá er það seinni hlutinn af gríninu hjá Daily Show með John Stewart.
ást og virðing
Ómar Örn
→ Enginn sagt sína skoðunTags: Hversdagsrúnk
Operation Deserter Storm
23 2008 · 3 hafa sagt sína skoðun
The Daily Show með John Stewart gerðu endalaust grína að íslendingum þegar við sendum Herdísi heim frá Írak og neituðum að vera ein af hinum viljugu þjóðum!