
Á vafri mínu á netinu (fékk linkinn sendann) datt ég inn á heimasíðu hjá fyrirtæki þar sem ég kannaðist heldur betur við vörumerkið. Fyrirtæki að nafni Sutor sem er í einhverri stál framleiðslu í Kína. Fyritækið var stofnað árið 2003 Eftir því sem ég kemst næst þá var vörumerki símans hannað og breytt í byrjun árs 2004 ári eftir að Sutor var stofnað og þá spyr maður sig hver stal frá hverjum? Eitt er víst að vörumerki símans var ekki ókeypis í hönnun og breytingum. Enda þurfti að breyta öllu markaðsefni og lógóum á verslunum og annað slíkt! Stóru spurningarnar eru líklega þessar! Hvernig getur það gerst að vörumerkin séu nákvæmlega eins og nánast sami liturinn á þeim? Og hver stal frá hverjum?
heimasíða Sutor er að finna hér
UPPFÆRT 12:00 skv. heimildum mínum þá var Sutor einungis með verksmiðjur sem stofnaðar voru árið 2003 en hafi verið brandað 2006! þannig að það lítur út fyrir kínverskan stuld
ást og virðing
Ómar Örn
20 Svör ↓
1 Steini Ben // 12, 2008 @ 11:50
Síminn að stela klárlega!! Held að við vitum það báðir
2 áddni // 12, 2008 @ 12:07
Kínverjar eru alltaf svo sniðugir í að spara, bara stela frá öðrum.
3 Villi // 12, 2008 @ 12:24
Flott uppgvötun þarna, en hvað varstu að gera a heimasiðu hja kinversku stalfyrirtæki haha ?
4 Palli // 12, 2008 @ 13:03
Eða öfugt.
5 Valli // 12, 2008 @ 13:04
Öflugur Ómar!
6 Gunnar Gunnars // 12, 2008 @ 13:35
kannski strákar mínir var þetta bara hrein tilviljun meina ekki þurfum við að gera úlfalda að mýflugu
7 sindri // 12, 2008 @ 14:09
ekki veit ég betur en að símamerkið sé stolið frá sænsku símafyrirtæki :/
8 Ómar Örn // 12, 2008 @ 14:13
Sindri ef þú getur sýnt fram á það endilega hentu link að því hérna í comment!
Gunnar: Brot á höfundarrétti er langt frá því að vera “mýfluga”
9 s // 12, 2008 @ 14:28
http://www.sonofon.dk/
10 Ómar Örn // 12, 2008 @ 14:53
ég get ekki verið sammála þér alveg með þetta sindri og þótt þetta væri að einhverju leiti líkt þá er allt annað concept í vörumerkinu hjá símanum að mínu mati…og þetta er ekki svona Copy paste stuldur eins og hjá Sutor!
11 G. // 12, 2008 @ 15:55
Eitthvað finnst mér gruggugt að þetta sé búið að vera á flakki á öllum fréttamiðlum landsins fyrir utan að ég veit hvar þetta fár átti upptökin og allt í einu birtist þú og eignar þér heiðurinn af þessu öllu.
Einhver lykt af þessu Ómar.
12 Ómar Örn // 12, 2008 @ 16:15
ég er ekki að eigna mér heiðurinn af einu né neinu G. ég setti þetta bara inn á síðuna mína eftir ábendingu frá félaga mínum….Ég er með pallborð hérna á eyjunni til þess að koma svona málum á framfæri. Óþarfi að saka mig um að stela einhverju þegar ég er ekki að gera slíkt!
13 Ómar Örn // 12, 2008 @ 17:36
og svo væri gaman ef þú myndir skrifa undir nafni ekki bara G. fyrst þú ert með svona ásakanir
eða þoriru því ekki?
14 gævar // 12, 2008 @ 18:29
Síminn borgaði einhverjar milljónir fyrir þetta logo. Ef það er stolið hvað þá?
15 Ómar Örn // 12, 2008 @ 18:35
ætli það sé ekki bara eitthvað höfundarréttarmál sem verður höfðað gegn annaðhvort fyrirtækinu Sutor eða gegn hönnuðinum sem “gerði” þetta lógó fyrir þá. En ég þekki þetta ekki nægilega vel til þess að segja hvað gerist í svona málum.
16 hlynur // 12, 2008 @ 19:17
Þetta er nákvæmlega sama merkið hahaha… ekki millimeters munur á þeim!
17 Atli // 12, 2008 @ 19:34
Sárt fyrir símann ef þetta er stolið þar sem letrið er aðkeypt. Þá er víst ekki mikið eftir í brandinginu þeirra.
http://www.faces.co.uk/topfonts/barmeno.cfm
18 Aron Agnarsson // 13, 2008 @ 02:01
uu.. eg stækkadi merkin i sömu stærd. gat ekki betur sed ad SUTOR logoið se aðeins teigðara lóðrétt en samt svipað
19 € // 13, 2008 @ 08:22
http://www.btinternet.com/~Terry.Noel/images/gn_logo.gif
20 Baldur // 14, 2008 @ 12:54
Það er eitt með þetta merki. downloadið einhverju fríulogoforriti af netinu og eyðið smá tíma í að skoða öll táknin sem þigð getið unnið með. Lofa ykkur að þið finnið nákvæmlega þetta merki símans. Ég gerði það í einhveru forriti fyrir meira en ári. Hugsið ykkur einhver fensí smensí auglýsingastofa fétkk tugi milljóna fyrir að hanna nýtt merki fyrir símann og það tók þá 2 min
Láttu þitt eftir liggja!