Fram kemur í frétt á Vísi að búið sé að ræða við Dag Sigurðsson fyrrverandi landsliðsfyrirliða í handbolta um að taka við handboltalandsliðinu. Viðræður hefðu verið gagnlegar og vonuðust bæði Jóhann Ingi formaður landsliðsnefndar og Guðmundur Ingvarsson Formaður HSÍ eftir að klára ráðningu í þjálfarastöðuna fyrir helgi. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég er spenntur fyrir Degi sem þjálfara, hann sannaði sig sem spilandi þjálfari hjá Bregenz í Austurríki, þar sem hann varð meistari 4 sinnum í röð og gerði miðlungslið að því besta. Hann er búinn að vera fyrirliði íslenska landsliðsins í fjölda ára og að mínu mati maður sem ætti að geta komið landsliði okkar í fremstu raðir á ný. Það er aftur á móti sorglegt fyrir Valsmenn að missa hann úr framkvæmdarstjórastöðunni sem hann er tiltölulega ný tekinn við. Vona innilega að þessi mál verði afgreidd sem fyrst svo hægt sé að koma landsliðinu á ólympíuleikana og næsta heimsmeistaramót!
ást og virðing
Ómar Örn
Ómar Örn
4 Svör ↓
1 Eiríkur Ólafsson // 12, 2008 @ 10:22
Skil bara ekki hvað það er svo merkilegt við það að vera spilandi þjálfari hjá liði í Austurríki. Finnst að Dagur þurfi að þjálfa eitthvað lið þar sem handbolti er spilaður af einhverju viti til að hægt sé að telja að um sé að ræða góður árangur og til þess að ég telji hann hæfann sem þjálfara landsliðsins. Skiptir engu máli hvar einstaklingurinn þjálfara bara ef árangurinn er góður? Hvernær keppti til að mynda Austurríki í Evrópumótinu eða heimsmeistaramótinu? Ekki man ég það, svo langt er það síðan.
2 Ómar Örn // 12, 2008 @ 10:51
Ég bjóst nú við svona commenti, en það sem eftir situr er að hann tók við miðlungsliði í Austurríki og gerði þá að sigurvegurum í Austurríki sem er lykilatriði! kemur árangri landsliðsins í Austurríki lítið við þar sem annar þjálfari er þar við stjórnina. Það sem þjálfari þarf að gera er að fá liðið til þess að spila sem eina heild, ekki sem einstaklingar eins og landsliðið sýndi í noregi að mínu mati. Ég hef trú á því að Dagur geti einmitt gert það.
3 Dúllarinn // 12, 2008 @ 14:50
Ég er efins með þessa ráðningu. Veit ekki af hverju, en held að það hefði verið skárri kostur að ráða erlendann þjálfara í starfið. Eins og mér fannst með íslenska landsliðið í fótbolta en þeir réðu Óla Jó, eins og kannski flestir vita. En ég mun gefa Degi séns, eins og Óla og vona að þeir eigi eftir að láta mig draga efasemdir mínar til baka og sanna að þeir sé verðugir arftakar þessara landsliða okkar
4 Ómar Örn // 12, 2008 @ 17:36
Sammála því dúllari
Láttu þitt eftir liggja!