Er að horfa á BAFTA verðlaunin á Rúv, og rosalega pirrar það mig þegar kynnir er að babla yfir miðja ræðu hjá fólki sem er að taka við verðlaunum! Í miðri ræðu hjá Anthony Hopkins fer hún að þýða ræðuna hans og maður gat ekki hlustað á restina fyrir blaðri!
ást og virðing
Ómar Örn
2 Svör ↓
1 Maggi Dilf. // 11, 2008 @ 12:07
já þetta er hrikalega leiðinlegt að fólk sé eitthvað að þýða allt sem sagt er. fólk á bara að vita að þetta er í beinni og því enginn texti.
2 albert // 12, 2008 @ 11:48
alveg sammála þér, þetta er óþolandi. Man að þetta var svona í fyrra líka, þá gafst ég upp í miðri útsendingu og sendi meira að segja póst á RÚV. Gott að vita að þeir taki svona marka á kvörtunum áhorfenda.. Spurning um að segja upp áskriftinni..
Láttu þitt eftir liggja!