Ómar Örn Ólafsson

Þetta er mitt glerhús. Hér kasta ég grjóti.

Ómar Örn Ólafsson header image 2

KSÍ að mismuna leikmönnum?

6, 2008 · 12 hafa sagt sína skoðun

Ég sá og las að leikmenn í efstu deild karla yrðu skyldaðir til þess að fara í hjarta og æðaskoðun af KSÍ frá og með árinu 2009. Þetta er frábært framtak hjá KSÍ enda sorglegt þegar menn detta niður dauðir í leik eða á æfingum úr hjartagalla sem auðvelt er að komast fyrir.

EN…hvað með þá leikmenn sem eru að spila í 1., 2. og 3 deild? Mega þeir þá detta niður dauðir af því að þeir eru ekki að spila í efstu deild og ekki skyldaðir til þess að fara í þessa skoðun þ.e með aðstoð KSÍ og mögulega UEFA? Og kvennmennirnir fá ekki þessa aðhlynningu heldur! Ég geri mér grein fyrir að þetta er kostnaðarsöm skoðun en það sama ætti að ganga yfir öll lið og alla leikmenn sem eru að keppa á mótum á vegum KSÍ annað er gróf mismunun og klárlega ekki boðleg! Ég vona að KSÍ fari nú að hugsa aðeins lengra en landsliðið sem by the way tapaði á móti Möltu og efstu deild karla!

Frábært framtak en fólki mismunað eins og því miður er of algengt!

ást og virðing
Ómar Örn

Tags: Hversdagsrúnk · Pirringur

12 Svör ↓

  • 1 Ólinn // 6, 2008 @ 12:05

    Já sé fyrir mér að hið annars magnaða félag Hvöt frá Blönduósi geti keppt í 3 deildinni ef að þeir þurfa að punga út 55.000 kall á kjaft. Hvað með bara alla sem spila íþróttir, er þeim ekki mismunað?

    En sammála með kvensurnar, en þetta er miðstýrt frá UEFA. Sem sagt ekki framtak KSÍ, þetta er UEFA að heimta þetta.

  • 2 Ómar Örn // 6, 2008 @ 12:07

    Það á ekki að skipta máli hvort nafnið er Hvöt sem er í 2. deildinni eða Valur í úrvalsdeild. Hjartagalli spyr ekki um lið er það? Hvort sem það er UEFA eða KSÍ sem er að heimta þetta þá á þetta að ganga yfir alla sem eru að spila undir formerkjum KSÍ ekki satt?

  • 3 Ólinn // 6, 2008 @ 13:46

    Þetta er bara ekki þannig. Aðeins efsta deild í hverju landi er skikkað til að framkvæma þetta. En á þetta að ganga yfir alla, burtséð frá öllu? í fullkomnum heimi, já. Allir geta verið með hjartagalla og allir gætu allt í einu farið frá vegna hans burtséð frá því hvort þeir eru í fótbolta, stunda kynlíf eða eru í íþróttum yfir höfuð.

    Hvað með HSÍ, BSÍ, ASÍ, KFUM, RLR og alla hina, eiga þeir bara að deyja?

    Spurning um raunsæi.

    Skál

  • 4 Maltverji // 6, 2008 @ 21:33

    Ertu ekki að meina landsliðið sem tapaði á móti Lichtenstein ?

  • 5 Ómar Örn // 6, 2008 @ 22:39

    það er sama landslið og tapaði á móti Möltu, kannski ekki allir sömu leikmenn en sama landslið…

  • 6 Fowler // 7, 2008 @ 09:09

    Ég verð nú að vera sammála Ómari í þessu. KSÍ hefur ekkert með ASÍ, KFUM, RLR, HSÍ og hvað þá BSÍ að gera!! Svo að þetta eru leiðinda útúrsnúningar hjá Ólanum..

    KSÍ liggur á digrum sjóði, eflaust er hægt að komast að einhverskonar samningum við heilbrigðisstofnanir ef farið yrði í jafnvíðtæka rannsókn og Ómar bendir á og á í raun rétt á sér.

    Kannski að Ólinn hugsi málið til enda þegar að þa rennur úr skálinni hjá honum ;)

  • 7 Ómar Örn // 7, 2008 @ 10:41

    Ólinn…í fyrsta lagi þá eru þessi upptölnu félög og samtök hjá þér ekki skylduð til þess að fara í hjarta og æðaskoðun, ef það væri einhver “alheimslögreglusamtök” sem myndu skylda RLR að setja lögreglumenn í hjarta og æðaskoðun þá væri asnalegt að setja bara yfirlögregluþjóna í þá skoðun en ekki hina almennu lögreglumenn, hvar er raunsæið í því?

    Fowler…eins og talað úr mínum munni ;)

  • 8 Ólinn // 7, 2008 @ 15:28

    Já sorry..

    náttúrulega bara asnalegt af mér að halda að KSÍ eigi ekki fyrir læknisskoðun allra þeirra 15.000 iðkenda íþróttarinnar á Íslandi.

    Ætti náttúrulega ekkert að koma ríkissjóði við…

    Þið afsakið meistarar.

    Skálin aðeins of full,
    Ólinn

  • 9 Ómar Örn // 7, 2008 @ 15:50

    voðalega eru menn bitrir! en ég skil alveg þína hlið á þessu máli Ólinn, en ég er bara ekki sammála því!

  • 10 Egill // 7, 2008 @ 17:38

    Það að ætla að skylda lið til að setja alla leikmenn í meistaraflokki í rannsóknir sem kosta 55. þús. kall myndi einfaldlega þýða það að minni félög myndu ekki senda lið til keppni, það væri bara sjálfhætt með 2. og 3. deild og jafnvel mörg lið ofar.

    Ég ætla að leyfa mér að efast um að liðum og leikmönnum í 1. deild og neðar finnist þeim vera mismunað.

  • 11 Ómar Örn // 7, 2008 @ 17:44

    Kannski ekki en ef einhver dettur niður í miðjum leik í íslandsmóti í 1.,2. eða 3. deild þá verður þetta endurskoðað! Afhverju í andskotanum þarf alltaf eitthvað að gerast áður en fólk vaknar, og hugsar “já við hefðum kannski átt að skylda neðrideildarliðin í skoðun líka”!!!

  • 12 Ómar Örn // 7, 2008 @ 17:47

    vandamálið verður ennþá til staðar þótt efsta deildin fari bara í þessa skylduðu skoðun!

Láttu þitt eftir liggja!