mér finnst þetta fyndið!
á borðinu liggja upplýsingar um stofnun samtaka freknaðs fólks og samtökin menn með valbrá í andlitinu eru einni á pallborðinu!
ást og virðing
Ómar Diegó
Færslur síðan 2007
Allt er til
30, 2007 · 2 Comments
Tags: Hversdagsrúnk
Komnir í úrslit Lengjubikarsins!
28, 2007 · No Comments
Vorum að spila við Hauka á Ásvöllum í dag, og það var ekki að spyrja að því að við sigruðum þá örugglega 0-4 og mætum því Fjarðarbyggð í úrslitum á föstudaginn næsta…Strákurinn stóð vaktina í markinu og gerði sér lítið fyrir og varði víti á 2. mínútu (egó? ég? NEIIIIII)
þá er bara að fjölmenna á […]
Tags: Íþróttir
Gengur þú á guðs vegum?
27, 2007 · 2 Comments
ég veit ekki hvað menn eru að drekka þessa dagana…það virðist eins og öll rökhugsun og sanngirni sé ekki til hjá sumum mönnum sbr.síðustu færslu undirritaðs…í dag ákvað ég að flétta í gegnum blaðið og fann smá grein sem heitir staksteinar! þar var vitnað í þáttinn kastljós þar sem séra Geir Waage og […]
Tags: Fréttir
Sjálfselskur leiðindapúki
26, 2007 · 8 Comments
Ég hlýt að hafa misst af faginu verum vond við heimilislausa 101 í menntaskóla. Nú loksins þegar Villi Vill borgarstjóri hefur ákveðið að kaupa annað hús svo heimilislausir geti fengið samastað þá fer allt hverfið að mótmæla. Í fréttablaðinu í dag er viðtal við mann sem heitir Pétur Gautur, Pétur Gautur býr í […]
Tags: Hversdagsrúnk
Helgin…
23, 2007 · 13 Comments
Síðasta helgi var alveg hrikalega blaut…þá er ég ekki að tala um rigningu! Ég skellti mér á árshátíð Vodafone í kóngsins Köben og get ég fullyrt það að carlsberg og tuborg verksmiðjurnar þurftu að auka framleiðsluna um helming á sunnudaginn! Föstudagurinn var alger snilld, ég kíkti á Kötu og Höllu frænku og Jóa […]
Tags: Hversdagsrúnk
The Landlord
15, 2007 · 1 Comment
ég sá þetta vídjó á síðunni hjá Gumma Jóh og ég vældi úr hlátri…hversu fyndinn getur Will Ferrel verið ég bara spyr?
ást og virðing
Ómar Diegó
Tags: Hversdagsrúnk
Norðurlandameistarar
14, 2007 · 5 Comments
Ég vil óska systur minni og Gerpluliðinu í trpmpfimleikum til hamingju með Norðurlandameistaratitilinn, sem þær eru í þessum töluðu orðum að taka á móti í Stokkhólmi…
Til Hamingju stelpur ég er alveg hrikalega ánægður með ykkur
ást og fimleikavirðing
Ómar Diegó
South Park
13, 2007 · 1 Comment
mér finnst þetta með því fyndnara sem ég hef heyrt í South Park þætti, ég gat ekki hætt að hlægja! Þetta er alveg hrikalega grófur húmor en mjög fyndið samt sem áður
ást og virðing
Ómar Diegó
Tags: Hversdagsrúnk
Spam
11, 2007 · No Comments
Mér finnst hrikalega fyndið að fá bréf frá skemmtilegu nígeríufólki sem segir við mig að þau eiga óútleystan arf hjá ríkum frænda í Abuja borg, og þau þurfa samt að fá pening frá mér svo þau geti leyst arfinn út, en ekki finnst mér eins fyndið þegar það er bara bull…þá fýkur í mig! hérna […]
Tags: Hversdagsrúnk
Innilega til hamingju
4, 2007 · 2 Comments
Innilega til hamingju hafnarfjörður fyrir að selja Alcan Risastórt land fyrir stækkun á álveri og banna síðan stækkunina!
Innilega til hamingju Reykjavík, vændi er leyft en strippstaðir ekki!
Innilega til hamingju ísland að þið eruð að kjósa yfir ykkur netlöggu og femenista ríkisstjórn, þar sem allt skemmtilegt verður bannað!
Innilega til hamingju með íslenska lýðræðið það virðist virka
EIIIIIMMMMIIIIIITTTTTT
ást […]
Tags: Hversdagsrúnk